Semsagt. Ég fann ástina í
lífi mínu. Hann bara veit það ekki. Ég semsagt sá Jude
Law. Hann er nú afar myndarlegur. Ég hefði nú kannski átt að
sleppa að taka þessi skot þá myndi ég muna eftir honum aðeins
betur... Jamm og jæ. Enda var ég nú ekki ein af þeim sem var
hangandi í honum. Dáðist af honum úr fjarlægð..
Sjarmöööör.
Ég hef ákveðið að fara með honum
aftur til London þegar hann fer, sem er any day now. Hann veit það
ekki heldur. Hann þarf svo sem ekkert að vita það að ég sé að elta
hann.
Annars var það þetta sem
stóð upp úr um helgina, það sem komið er...
*Að sjá Jude Law er nú það
helsta
*Langi Mangi sem slagaði upp
Laugaveginn
*Ég að syngja Sweet Child of
mine
*Billiard.. ég
vann!
*Drykkjuleikur... það vann hann
enginn
*Vondi ostborgarinn á Nonna..
oooojjj
*Svíinn sem talaði sænsku við mig
á fullu, blablabla, varð svo reiður þegar ég sagði hey
då.
*18 þúúsund
Laugavegar!
Já.. ég sé nú eftir að hafa ekki
virt Jude aðeins betur fyrir mér. Æji hann var bara fastur þarna í
einhverri þvögu af örvingluðum stelpum. Ekki mér, ég hélt minni
fjarlægð. Dugleg stelpa. Hann hefði hvort sem er ekkert geta
staðist mig..
Elín hin
ómótstæðilega!